Vottanir

Steinull hf fékk fyrst CE vottun á byggingaeinangrun árið 2003 sem endurnýjuð er árlega samkvæmt staðli ÍST EN 13162. fyrir CE merkingu á varmaeinangrun úr steinull. Vottunaraðili er VTT Expert Service Ltd í samvinnu við NMÍ Keldnaholti. Steinull hf hefur CE vottun á lausull samkvæmt EN 14064-1. og er vottunaraðili VTT Expert Service Ltd. CE vottun á tæknieinangrun samkvæmt EN 14303:2009 + A1:2013 fékk Steinull hf fyrst árið 2012 og er vottunaraðili Eurofins Scientific.

September 2012 fékk Steinull hf fyrst vottun á gæðastjórnunarkerfi og kröfum samkvæmt ÍST EN ISO 9001. Vottunaraðili er Eurofins Scientific í Finnlandi. Vottun tekur á þróun, framleiðslu, markaðssetningu og sölu á steinullareinangrun framleiddri í verksmiðju fyrirtækisins á Sauðárkróki.
Apríl 2013 fékk Steinull hf vottun á umhverfisstjórnunarkerfi og kröfum samkvæmt ÍST EN ISO 14001. Vottunaraðili er Eurofins Scientific. Vottun tekur á þróun, framleiðslu, markaðssetningu, sölu og afgreiðslu á steinullareinangrun sem framleidd er úr basaltsandi í verksmiðju fyrirtækisins á Sauðárkróki og tekinn er úr námu 18117 í skrá Vegagerðar Ríkisins.

Vottun á framleiðslu þráða sem mynda steinull.